Forsaga málsins er sú að eldri hjón voru áður búsett í húsinu, en eiginmaðurinn, Alois Iffly, hvarf sporlaust árið 2009 þegar hann var 81 árs. Umfangsmikil leit var gerð að honum eftir hvarfið en hann fannst ekki. Konan hans hélt þó áfram að búa í húsinu allt þar til hún lést í hárri elli árið 2020.
Húsið fór á sölu í kjölfarið og tók það nokkurn tíma að seljast. Það tókst þó árið 2023 og voru nýir eigendur að vinna að endurbótum þegar þeir fundu líkamsleifar Alois á háa loftinu þann 2. nóvember síðastliðinn. Voru nýju eigendurnir að reyna að finna uppruna leka úr þaki hússins þegar þeir gengu fram á líkið.
Í frétt BBC er haft eftir saksóknaranum Olivier Glady að flest bendi til þess að Alois hafi framið sjálfsvíg þar sem reipi hékk úr loftbita fyrir ofan líkið. Lögregla fer með rannsókn málsins og hefur líkið verið sent til rannsóknar til Strasbourg.