Hún hafði hringt í neyðarlínuna í Pierson í Flórída og það viljandi. Lögreglan hefur hrósað konunni í hástert fyrir snjallræðið en með þessu tókst henni að blekkja mann sem er grunaður um að hafa misþyrmt henni.
NBC News skýrir frá þessu og segir að þegar neyðarvörður svaraði hringingu konunnar þann 19. október hafi hún sagst vilja panta pitsu. „Ég vil gjarnan panta pitsu. Ég er svo föst hérna,“ sagði konan í upphafi samtalsins.
Neyðarvörðurinn sagði þá: „Ókei. Þú veist að þetta er neyðarlínan.“
„Já, ég er viss um að ég hringdi í rétt númer. Ég er að reyna að panta pitsu,“ svaraði konan.
Hún var því næst spurð um heimilisfangið og sagðist hún þá vona að viðmælandinn hefði heimilisfangi hennar og að hún kæmist ekki heim. Síðan hélt hún áfram að tala eins og hún vildi panta pitsu. „Get ég fengið pitsu? Með pepperóní og auka osti.“
„Hversu margir eru þarna?“ spurði neyðarvörðurinn.
„Bara ég og hann,“ svaraði konan.
„Ertu meidd?“ spurði neyðarvörðurinn.
„Já,“ svaraði konan.
Lögreglumenn voru strax sendir að svæði í Pierson, þar sem lögreglunni hafði tekist að staðsetja símann, og byrjuðu þeir að leita að henni. Að lokum heyrðu þeir háværa tónlist berast frá akri einum og þegar þeir nálguðust tónlistaruppsprettuna sáu þeir mann liggja ofan á öskrandi konu.
„Hann er að reyna að nauðga mér. Getið þið hjálpað mér?“ heyrist konan segja á upptöku úr búkmyndavél eins lögreglumannanna.
Lögreglumennirnir gripu auðvitað inn í og handtóku manninn.