Sendandi skilaboðanna sagði að Charlene þyrfti að veita honum ýmsa „kynferðislega greiða“ til að koma í veg fyrir að upplýsingunum yrði lekið. Ef hún gerði það ekki myndi faðir hennar einnig missa vinnuna hjá ónefndu flugfélagi í Dublin þar sem fjölskyldan bjó.
Charlene sagði sögu sína í hlaðvarpsþættinum The Indo Daily á dögunum.
Í viðtalinu sagði Charlene að hún hafi ekki áttað sig á því hvað hún átti að hafa gert og hvaða upplýsingar væru svo viðkvæmar að þær mættu ekki líta dagsins ljós.
„Í svona aðstæðum er manneskjan sem maður leitar til foreldri svo ég leitaði til pabba og spurði hann ráða. Hann sagði við mig: „Þú verður að gera þetta“ sem voru ekki viðbrögðin sem ég bjóst við,“ sagði hún.
Ónefndi maðurinn lýsti því í skilaboðunum að hann myndi mæta heim til hennar og til að ekki yrðu borin kennsl á hann þyrfti hún að bíða eftir honum inni í herberginu sínu með bundið fyrir augun og með tónlist í eyrunum. Charlene sá ekki annan kost í stöðunni en að gera þetta.
„Ég man vel eftir þessu. Ég klæddi mig í þau föt sem sendandinn lagði til og svo stóð pabbi í glugganum og sagði: Hann er að koma.“
Þetta stóð yfir reglulega í um sjö ár, eða allt þar til að sannleikurinn komst upp á yfirborðið. Charlene var aðstoða ömmu sína við að setja upp forrit í tölvunni hennar þegar hún fann DVD-disk með upptökum af brotunum.
„Ég þurfti ekki að horfa á meira en 10 sekúndur. Þegar hann kom heim var ég enn að fá skilaboð send og ég svaraði á þá leið að ég vissi að þetta væri hann. Hann öskraði og spurði hvernig mér dytti það í hug. Eftir þetta fékk ég ekki fleiri skilaboð,“ segir hún en bætir við að ekki hafi betra tekið við. Faðir hennar hafi byrjað að káfa á henni og nauðga henni reglulega.
Charlene var 25 ára þegar hún gat loksins opnað sig um brot föður síns. Málið fór sína leið í írsku réttarkerfi og fór svo að lokum að faðir hennar, David Masterson, var dæmdur í 17 ára fangelsi. Hann játaði sök í málinu.