Þann 1. október, eða fyrir akkúrat viku, fannst sextug kona látin á heimili sínu í Toronto og bendir allt til þess að henni hafi verið ráðinn bani. Að sögn lögreglu þekkti Sabrina fórnarlamb sitt.
Það gerði hún hins vegar ekki varðandi næstu tvö fórnarlömb sem virðast hafa verið valin af handahófi. Lance Cunningham, 47 ára, fannst illa særður skammt frá Niagara Falls-þjóðgarðinum og lést hann af sárum sínum stuttu síðar. Lance skildi eftir sig eiginkonu og þrettán ára dóttur en hann var úti að viðra hundinn sinn þegar ráðist var á hann.
Þriða fórnarlambið, Mario Bilich, 77 ára, fannst svo illa slasaður daginn eftir á bílastæði í Hamilton í Ontario. Hann lést á sjúkrahúsi síðar sama dag en hann hafði verið stunginn illa.
Upptökur úr öryggismyndavélum komu lögreglu á sporið og leiddu þær í ljós að sami einstaklingur hafði verið að verki í báðum síðarnefndu morðunum. Lögregla telur svo fullvíst að Sabrina hafi verið að verki í Toronto fyrir viku síðan.
„Samkvæmt skilgreiningu er hún raðmorðingi,“ sagði Bill Fordy, lögreglustjóri á Niagara-svæðinu í Kanada, á blaðamannafundi í gær. Segist hann þakklátur fyrir það að hún hafi náðst jafn snemma og raun bar vitni enda allar líkur á því að hún hefði haldið ofbeldisglæpum sínum áfram.