fbpx
Sunnudagur 06.október 2024
Pressan

Rannsókn á DNA eins síðasta Neanderdalsmannsins veitir merkilegar upplýsingar um innræktun og 50.000 ára erfðafræðilega einangrun

Pressan
Sunnudaginn 6. október 2024 13:30

Neanderdalsmaður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thorin, sem er nefndur eftir dverg einum úr Hobbitanum eftir J.R.R. Tolkien, er stundum sagður vera „síðasti Neanderdalsmaðurinn“ því hann var hugsanlega uppi fyrir aðeins 42.000 árum.

Thorin var einn af síðustu Neanderdalsmönnunum sem gekk um hér á jörðinni. Hann er af ætt, sem ekki var vitað um áður, sem bjó í einangrun í 50.000 ár. Þetta er niðurstaða rannsóknar á erfðaefni hans.

Thorin fannst 2015 í innganginum að Grotte Mandrin í Rhone dalnum í suðurhluta Frakklands. Það var þó aðeins smáhluti hans sem fannst eða tennurnar og hluti af höfuðkúpunni.

Live Science segir að erfðamengi hans hafi verið rannsakað til að öðlast betri skilning á af hvenær og hvernig Neanderdalsmenn hurfu af sjónarsviðinu.

Rannsóknin var birt nýlega í vísindaritinu Cell Genomics. Vísindamennirnir, sem voru undir forystu Ludovic Slimak, komust að því að Thorin hafi verið af ætt Neanderdalsmanna sem var einangruð í þúsundir ára þrátt fyrir aðrir hópar Neanderdalsmanna hafi búið nærri þeim.

Slimak, sem fann leifar Thorin á sínum tíma, setti þá kenningu fram fyrir um tuttugu árum að Neanderdalsmenn í Rhone dalnum hafi verið öðruvísi en þeir sem lifðu í nágrenni við dalinn. Þetta byggði hann á því að steinverkfæri sem fundust í Grotte Mandrin eru öðruvísi en þau sem hafa fundist í nærliggjandi búsetusvæðum Neanderdalsmanna. Hann setti fram þá kenningu að Thorin og ættingjar hans hafi ekki tekið upp nýjar aðferðir við verkfæragerð, aðferðir eins og aðrir hópar Neanderdalsmanna notuðu.

Hann sagði Live Science að hann hafi verið sannspár fyrir tuttugu árum. Thorin og hans fólk hafi lifið í einangrun í 50.000 ár án þess að blanda svo mikið sem einu geni við hina klassísku Neanderdalsmenn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Sérfræðingur með slæm tíðindi – Nýr heimsfaraldur er óhjákvæmilegur

Sérfræðingur með slæm tíðindi – Nýr heimsfaraldur er óhjákvæmilegur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessu getur þú ekki logið að tannlækninum – Hann sér líka ef þú hefur stundað munnmök

Þessu getur þú ekki logið að tannlækninum – Hann sér líka ef þú hefur stundað munnmök
Pressan
Fyrir 4 dögum

Donald Trump varar við algjörri katastrófu

Donald Trump varar við algjörri katastrófu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heimsstyrjöld vofir yfir: Segir að lítið megi út af bregða til að allt fari til fjandans

Heimsstyrjöld vofir yfir: Segir að lítið megi út af bregða til að allt fari til fjandans