fbpx
Mánudagur 28.október 2024
Pressan

„Ferðatöskumorðinginn“ sakfelld

Pressan
Mánudaginn 28. október 2024 07:30

Sarah Boone og Jorge Torres.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn kvað kviðdómur í Flórída upp þann dóm að Sarah Boone hefði myrt unnusta sinn fyrir fjórum árum. Hann kafnaði ofan í ferðatösku.

Metro segir að Boone hafi verið handtekin fyrir rúmum fjórum árum í kjölfar andláts Jorge Torres í Winter Park í Flórída.

Þau voru að sögn Boone í feluleik á heimili þeirra  í febrúar 2023. Skyndilega datt þeim í hug að það gæti verið fyndið ef Torres færi ofan í ferðatösku.

Hún lokaði ferðatöskunni og fór síðan að sofa að eigin sögn en þau höfðu bæði neytt áfengis. Hún sagðist hafa talið að Torres kæmist af sjálfsdáðum úr töskunni.

Þegar hún vaknaði næsta morgun fann hún Torres ekki og mundi þá skyndilega að hann var í ferðatöskunni þegar hún fór að sofa. Hún sagðist hafa opnað hana en Torres hafi ekki sýnt nein viðbrögð.

Hún var ákærð fyrir morð eftir að upptökur fundust í síma hennar sem sýndu Torres öskra úr ferðatöskunni. Hann öskraði að hann næði ekki andanum og kallaði ítrekað á Boone.

Hún sagði að í ljósi ofbeldisfullra samskipta þeirra hafi hún óttast að hann myndi valda henni líkamstjóni og að það hafi verið sjálfsvörn að hún hafði hann í ferðatöskunni.

Boone á ævilangt fangelsi yfir höfði sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Everest er hærra en það ætti að vera – Hugsanlega á undarleg á þar hlut að máli

Everest er hærra en það ætti að vera – Hugsanlega á undarleg á þar hlut að máli
Pressan
Í gær

Áttu gamla lottómiða heima? Það gæti verið ráð að skoða þá

Áttu gamla lottómiða heima? Það gæti verið ráð að skoða þá
Pressan
Fyrir 3 dögum

Starfsfólkið getur bara hætt ef því líkar ekki stefna okkar varðandi heimavinnu segir forstjóri einn

Starfsfólkið getur bara hætt ef því líkar ekki stefna okkar varðandi heimavinnu segir forstjóri einn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að ráðast á sofandi samnemendur sína og kennara með hamri

Dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að ráðast á sofandi samnemendur sína og kennara með hamri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Öðlaðist hugrekki um hálfri öld síðar til að segja frá hryllilegu ofbeldi föður síns og bróður

Öðlaðist hugrekki um hálfri öld síðar til að segja frá hryllilegu ofbeldi föður síns og bróður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrirsæta segir að lýtalæknir hafa gert hana að kynlífsþræl – Óþekkjanleg eftir ofbeldið

Fyrirsæta segir að lýtalæknir hafa gert hana að kynlífsþræl – Óþekkjanleg eftir ofbeldið