Sky News skýrir frá þessu og segir að rannsóknin hafi einnig leitt í ljós að lyfið gagnaðist þeim sem eru háðir ópíóíðum. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Addiction.
Í henni kemur fram að vísindamennirnir rannsökuðu áhrif lyfja á borð við Ozempic lyfja á borð við Mounjaro. Þessi lyf eru ekki byggð á sömu tækninni og virka því á mismunandi hátt á líkamann.
En lyfin eiga það sameiginlegt að þau geta hjálpað fólki að takast á við fíkn, því auk þess að takast á við matarlyst, þá hafa þau einnig áhrif á þann hluta heilans sem viðheldur fíknihegðun að mati sérfræðinga.