Potturinn var 478 milljónir Bandaríkjadala, rúmir 66 milljarðar króna, og var hann einn með allar tölurnar réttar: 2, 15, 27, 29, 39 og rauða ofurtalan var 20.
Vinningshafinn getur valið um það að fá allan vinninginn greiddan út jafnt og þétt næstu 29 árin eða valið að fá eingreiðslu upp á 230,6 milljónir dollara, tæpa 32 milljarða króna.
Segja má að líkurnar hafi ekki verið með honum í liði því líkurnar á að fá allar tölurnar réttar í Powerball-lottóinu eru 1 á móti 292.201.338.
Tveir mánuðir eru liðnir síðan sá stóri gekk síðast út í Powerball-lottóinu en þá vann Flórídabúi 44,3 milljónir dollara.
Miðahafinn í Georgíu hefur 180 daga til að gefa sig fram og innheimta vinninginn.