fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Pressan

Martröð barnfóstrunnar – Fjölskyldufaðirinn var með augu allsstaðar – „Fyrirgefðu, ég var bara að perrast“

Pressan
Fimmtudaginn 24. október 2024 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnfóstra í Alabama varð skelfingu lostin þegar hún uppgötvaði að fjölskyldufaðirinn hafði njósnað um hana með földum myndavélum. Hann hafði jafnvel fylgst með henni á salerninu.

Alyssa Glavan byrjaði í desember að gæta tveggja barna fyrir Bethancourt hjónin. Hún hafði unnið fyrir þau nokkurt skeið þegar hún uppgötvaði að ekki væri allt með felldu, dag einn þegar hún var stödd inni á baðherberginu.

„Ég missti eyrnapinna í gólfið og beygði mig niður til að tína þá upp og þá sé ég reykskynjara sem var á veggnum í sömu hæð og klofið á mér. Ég  hugsaði að þetta væri skrítið, af hverju væri reykskynjari inni í skáp og það inni á baðherbergi.“

Hún áttaði sig fljótt á því að reykskynjarinn var eftirlitsmyndavél í dulargervi. Hún tók skynjarann af veggnum til að fá grun sinn staðfestan og fann þá minniskort og QR-kóða með myndavélinni. QR-kóðinn vísaði á forrit sem bókstaflega kenndi sig við njósnir.

„Henni hafði verið komið fullkomlega upp til að hann gæti fylgst með því þegar ég gyrti niður um mig. Ég bara trúði þessu ekki. Þegar ég sá minniskortið hugsaði ég guð minn góður og svo þegar ég sá QR-kóðann sem vísaði á leiðbeiningar fyrir uppsetningu á I-spy myndavél – þá rann upp fyrir mér ljós og ég fríkaði út, hjartað mitt vaar á milljón.“

Hún ákvað að bregðast strax við, tók börnin með sér upp á næstu lögreglustöð og tilkynnti um myndavélarnar. Fjölskyldufaðirinn, Jonathan Bethancourt, áttaði sig á því hvað væri að gerast og sendi skilaboð og barnfóstruna þar sem hann bauðst til að greiða henni mútur svo hún gerði ekki meira mál úr þessu. Hann byrjaði svo að hringja í hana. Á meðan á þessu stóð var Glavan, líkt og áður segir, þegar komin á lögreglustöðina svo lögreglumenn buðu henni að svara símtalinu og leyfa þeim að taka upp hvað Jonathan hefði að segja sér til málsbóta.

„Fyrirgefðu, ég var bara að perrast,“ sagði Jonathan þegar Glavan hafði svarað.  Jonathan sem er 31 árs,  hefur nú verið ákærður fyrir stafrænar gægjur, sem er eins konar blygðunarsemisbrot samkvæmt bandarískum stöðlum. Glavan hefur farið fram á miskabætur fyrir tilfinningalegt tjón, fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs og fyrir opinbera niðurlægingu.

Tveir aðrir meintir þolendur hafa eins lagt fram kæru, en annar þeirra mun vera ólögráða.

DailyMail greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir fer í hart í kjölfar þess að sonur hennar svipti sig lífi eftir að hann varð ástfanginn af spjallmenni

Móðir fer í hart í kjölfar þess að sonur hennar svipti sig lífi eftir að hann varð ástfanginn af spjallmenni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Öðlaðist hugrekki um hálfri öld síðar til að segja frá hryllilegu ofbeldi föður síns og bróður

Öðlaðist hugrekki um hálfri öld síðar til að segja frá hryllilegu ofbeldi föður síns og bróður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sýndi tollvörðum á flugvellinum myndir úr fríinu sínu – Var handtekin samstundis

Sýndi tollvörðum á flugvellinum myndir úr fríinu sínu – Var handtekin samstundis
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rússneskir njósnarar sagðir hafa sent sprengjur flugleiðis til Bretlands og Þýskalands

Rússneskir njósnarar sagðir hafa sent sprengjur flugleiðis til Bretlands og Þýskalands
Pressan
Fyrir 3 dögum

Telur þetta benda til þess að úrslitin í bandarísku forsetakosningunum séu ráðin

Telur þetta benda til þess að úrslitin í bandarísku forsetakosningunum séu ráðin