fbpx
Sunnudagur 13.október 2024
Pressan

Elon Musk blandar sér í umræðuna um fljúgandi furðuhluti og telur að þetta sé í gangi

Pressan
Sunnudaginn 13. október 2024 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elon Musk, ríkasti maður heims og stofnandi Tesla og Space X, hefur blandað sér í umræðuna um fljúgandi furðuhluti sem hefur verið nokkuð áberandi undanfarin misseri í Bandaríkjunum.

Fjölmörg mál hafa komið upp í Bandaríkjunum á síðustu árum þar sem fólk telur sig hafa séð fljúgandi furðuhluti. Flugmenn bandaríska flughersins tóku meira að segja upp myndband, sem búið er að sannreyna að sé ósvikið, fyrir nokkrum árum af einhverju dularfullu loftfari en umrætt myndband hefur vakið mikla athygli.

Elon Musk hefur litla trú á því að þarna séu geimverur á ferðinni og telur raunar að þarna sé um að ræða háleynilegar tilraunir með loftför bandaríska hersins.

Geta ekki skýrt 143 af 144 málum – Geta ekki útilokað tilvist þeirra

Musk var í viðtali við Tucker Carlson í vikunni þar sem komið var meðal annars inn á þetta. Musk er mikill áhugamaður um geiminn og í störfum sínum fyrir SpaceX segist hann aldrei hafa séð nein sönnunargögn um tilvist geimvera.

„Það er margt sem við vitum ekki. Hvaðan komum við og hvar eru geimverurnar,“ spurði Musk og bætti við að í himinhvolfinu væru sex þúsund Starlink-gervihnattadiskar og ekki einn þeirra hafi komist í námunda við eitthvað sem telst óeðlilegt, fljúgandi furðuhlut eða eitthvað slíkt.

Kveðst Musk telja líklegt að bandaríski herinn sé stöðugt að prófa og þróa háleynileg loftför, vopn og annað slíkt og það sé ástæðan fyrir mörgum tilkynningum um fljúgandi furðuhluti að undanförnu. Leyndin yfir þessum verkefnum sé svo mikil að jafnvel æðstu menn í hernum viti ekkert um þau.

Musk segist lofa því að hann muni segja almenningi frá því ef gervihnettir Starlink taka eftir einhverju óvenjulegu á sveimi í kringum okkur. „Um leið og ég sé einhver sönnunargögn um tilvist geimvera mun ég birta það strax á X. Það verður sennilega vinsælasta færsla sögunnar,“ segir Musk sem jafnframt er eigandi X, áður Twitter.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fullorðinn maður fékk mikið hrós fyrir „snilldarlega hefnd“ gegn níu ára dreng

Fullorðinn maður fékk mikið hrós fyrir „snilldarlega hefnd“ gegn níu ára dreng
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hundur reif handlegginn af eiganda sínum – Lögreglustjórinn aldrei séð annað eins

Hundur reif handlegginn af eiganda sínum – Lögreglustjórinn aldrei séð annað eins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varpar sprengju í nýrri bók: Töldu miklar líkur á að Rússar myndu beita kjarnavopnum

Varpar sprengju í nýrri bók: Töldu miklar líkur á að Rússar myndu beita kjarnavopnum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hundur eða maður? – Netverjar klóra sér í kollinum yfir furðulegu myndbandi

Hundur eða maður? – Netverjar klóra sér í kollinum yfir furðulegu myndbandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Framkvæmdi skurðaðgerð með vasahnífnum sem hann notaði við að borða hádegismatinn

Framkvæmdi skurðaðgerð með vasahnífnum sem hann notaði við að borða hádegismatinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Landflótta Norður-Kóreumaður vildi komast heim aftur – Heimferðin endaði illa

Landflótta Norður-Kóreumaður vildi komast heim aftur – Heimferðin endaði illa