Sem aðalhönnuður hafði hann mikið að gera með margar af vinsælustu vörum Apple. Hann kom til dæmis að hönnun og gerð iPod, iPad og iPhone.
Hann hætti hjá Apple 2019 en það þýðir ekki að hann hafi bara legið í leti síðan því hann er að vinna að nýrri vöru, alveg ólíkri öðru sem er á markaðnum.
Í umfjöllun The New York Times staðfestir Ive að hann sé að vinna að nýrri vöru í samvinnu við Sam Altman, forstjóra OpenAI sem er þekktast fyrir ChatGPT.
Orðrómur um samstarfið fór á kreik fyrr á árinu og hann hefur greinilega átt við rök að styðjast.
Lítið er vitað um þessa nýju vöru annað en að vinnan við hana er fjármögnuð af LoveFrom, sem er fyrirtæki í eigu Jony Ive, og Laurene Powell, ekkju Steve Jobs.
Ive og samstarfsfólk hans vonast til að hafa aflað sér eins milljarðs dollara fyrir árslok til að standa straum af kostnaðinum við verkið.
Aðeins tíu manns vita hvert verkefnið er og það eru ekki bara einhverjir sem voru fengnir inn af götunni því Ive tókst meðal annars að lokka Tang Tan og Evans Hankey frá Apple til sín en hann vann með þeim að þróun iPhone.