Jeffrey fannst látinn í fangaklefa sínum í Metropolitan-fangelsinu í New York í ágúst 2019. Opinber dánarorsök hans var sjálfsvíg, en ýmsum kenningum hefur verið varpað fram um að eitthvað annað hafi átt sér stað í fangaklefanum sem leiddi til dauða kaupsýslumannsins.
Embætti yfireftirlitsaðila hjá bandaríska dómsmálaráðuneytinu komst að þeirri niðurstöðu í sumar að mistök starfsmanna hefðu orðið til þess að Epstein, sem talinn var í sjálfsvígshættu, tókst að svipta sig lífi. Þannig hafi fangaverðir ekki kannað ástand hans með reglubundnum hætti eins og þeim bar að gera.
Mark Epstein hefur sett spurningarmerki við þetta og veltir hann því upp að samfangi bróður hans hafi mögulega drepið hann – kannski að skipun annars fanga.
„Ef þú skoðar öll sönnunargögnin, krufningarskýrsluna, myndir af líkinu – þú myndir aldrei komast að þeirri niðurstöðu að um sjálfsvíg hefði verið að ræða,“ segir hann í viðtali við Guardian.
Bent hefur verið á það að myndavél sem beint var að fangaklefa auðmannsins hafi ekki verið á upptöku og tveir fangaverðir sem áttu að gæta hans stóðu ekki upp frá skrifborði sínu tímunum saman. Þá segir Mark að dyr inni í fangaálmunni hafi verið opnar og fangar getað gengið á milli svæða.
„Spurningin er þessi: Hver lét drepa hann?“
Mark segir að Jeffrey hafi búið yfir upplýsingum um valdamikið fólk, þar á meðal frambjóðendur í bandarísku forsetakosningunum 2016. Dauða hans megi því að líkindum rekja til þeirra viðkvæmu upplýsinga sem hann bjó yfir.