Maðurinn, sem er frá Sýrlandi, hafði áður valdið mikilli skelfingu og ótta meðal borgarbúa. Hann hafði ekið um í hvítum sendiferðabíl og kveikt í tveimur fasteignum og ekið inn í verslanir. 31 slasaðist við þessa tryllingsför mannsins. Þar af slösuðust átta börn alvarlega og eru tvö þeirra í lífshættu að sögn Bild.
Það var skömmu eftir klukkan 17 sem maðurinn kveikti í íbúð í fjölbýlishúsi og hóf þar með þessa tryllingsför sína. Því næst ók hann yfir í næstu götu og kveikti í húsi þar.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang hékk fólk hálft út um glugga og ríghélt í börn sín sem það hafði látið síga niður fyrir gluggana. Slökkviliðsmenn urðu því að hafa snarar hendur til að bjarga fólkinu.
Því næst ók maðurinn yfir í næstu götu þar sem hann ók meðvitað ítrekað inn í tvær verslanir. Í þeirri síðari steig hann út úr bílnum og og dró upp 40 cm langa sveðju.
Hann ógnaði fólki en nærstaddir, vopnaðir kústum, skóflum og málmtunnu, reyndu að halda honum frá fólki og grýttu ýmsu í hann.
Að lokum náðu tveir lögreglumenn að yfirbuga manninn og handtaka hann. Það gerðist við síðari verslunina sem hann ók inn í.