Live Science skýrir frá þessu og segir að pláneturnar séu á á ferð um Perseus sameindaskýið, sem er í 960 ljósára fjarlægð frá jörðinni. Massi þeirra er fimm til tíu sinnum meiri en massi Júpíters.
Þessar plánetur eru sönnun þess að risastórar plánetur geta myndast á svipaðan hátt og stjörnur þegar gasský í geimnum þjappast saman.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu The Astronomical Journal.
Adam Langeveld, aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði að í rannsóknni hafi mörk stjörnumyndunar verið rannsökuð. „Ef þú ert með hlut sem líkist ungum Júpíter, er hugsanlegt að hann hefði orðið stjarna við réttu skilyrðin? Þetta er mikilvægt efni til að skilja hvernig stjörnur og plánetur myndast,“ er haft eftir honum í tilkynningu í tengslum við birtingu rannsóknarinnar.