Svona lítur þetta út í svarthvítu myndbandi, sem Melania Trump, birti á X en í því les hún upp úr kafla úr nýrri bók sinni. Hún lýsir því þegar hún og eiginmaður hennar, Donald Trump, og sonur þeirra þurftu eitt sinn, þegar þau bjuggu í Hvíta húsinu, að leita skjóls í öryggisherbergi.
Fyrir utan forsetabústaðinn hrópuðu ósáttir mótmælendur slagorð og lífverðir forsetans óttuðust að þeir myndu reyna að ráðast inn í Hvíta húsið.
„Lífvörðurinn sagði að ég yrði að fara í burtu. Öryggið skipti öllu. Ekki bara fyrir mig, heldur fyrir forsetann og alla aðra íbúa Hvíta hússins. Þessi ofbeldisfullu mótmæli höfðu nú náð alla leið til Pennsylvania Avenue,“ segir hún.
https://t.co/ZCTwZSqZND pic.twitter.com/XFao7ww26U
— MELANIA TRUMP (@MELANIATRUMP) September 22, 2024
Þetta var þann 29. maí 2020. Bandaríkin lágu nánast á hliðinni, ekki aðeins vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar heldur einnig vegna mótmæla vegna dráps lögreglunnar á George Floyd. Hann lést nokkrum dögum áður þegar hvítur lögreglumaður sat á baki hans í níu og hálfa mínútu þrátt fyrir að Floyd, sem var svartur, hafi ítrekað sagt að hann næði ekki andanum.
Sorgin og reiðin yfir drápinu urðu til þess að mikil mótmælaalda breiddist út um öll Bandaríkin og jafnvel annarra landa.
The New York Times hefur áður skýrt frá því að forsetafjölskyldan hafi þurft að leita skjóls í neðanjarðarrými í Hvíta húsinu vegna mótmæla Black Lives Matters hreyfingarinnar í Washington D.C.
Newsweek segir að mótmælin við Hvíta húsið hafi verið friðsamleg í fyrstu en þegar leið á kvöldið reyndu óróaseggir að brjótast í gegnum öryggisgirðingar og grýttu lögregluna. Nokkrir úr lífvarðarsveit forsetans meiddust þegar hlutum var kastað í þá. Var þá ákveðið að flytja forsetafjölskylduna í öryggisherbergi neðanjarðar.
CNN segir að forsetahjónin og sonur þeirra, Barron, hafi verið í öryggisherberginu í um eina klukkustund.
Bók Melania, sem heitir Melania, kemur út 8. október.