Óhætt er að segja að Philið hafi upplifað sannkallaða martröð því uppreisnarmennirnir hótuðu ítrekað að drepa hann yrði ákveðnum skilyrðum ekki mætt.
Philip starfaði sem flugmaður fyrir indónesíska flugfélagið Susi Air og þann 7. Febrúar í fyrra fékk hann það verkefni að sækja hópa verkamanna sem voru að byggja heilsugæslu á vestari helmingi Papúa Nýju-Gíneu.
Flugmaðurinn í afar erfiðri stöðu – Hóta að drepa hann innan tveggja mánaða
Höfðu uppreisnarmennirnir staðið í hótunum við verkamennina og voru þeir sóttir til að tryggja öryggi þeirra. Ekki vildi betur til en svo að þeir náðu Philip og héldu honum föngnum allt þar til hann var látinn laus um helgina.
Uppreisnarmennirnir á vesturhelmingi Papúa Nýju-Gíneu hafa lengi krafist þess að svæðinu verði veitt sjálfsstjórn, en í dag er vesturhelmingur landsins undir yfirráðum Indónesíu.
Ástralskir fjölmiðlar greina frá því að stjórnvöld í Nýja-Sjálandi og á Indónesíu hafi átt í viðræðum við uppreisnarmennina um að sleppa Philip lausum. Þær viðræður virðast hafa borið ávöxt en ekki liggur fyrir hvort lausnargjald hafi verið greitt eða hvaða skilyrði þurfti að uppfylla.