Lögregla bar kennsl á konuna með aðstoð fingrafara og kom þá í ljós að tilkynnt hafði verið um hvarf konunnar fyrir sextán árum. Fyrrverandi sambýlismaður hennar var handtekinn og hefur hann nú viðurkennt að hafa orðið henni að bana.
BBC greinir frá þessu.
Maðurinn sem var handtekinn er á sextugsaldri og játaði hann að hafa barið konuna í höfuðið í kjölfar heiftarlegra rifrilda þeirra á milli árið 2008.
Kom hann líki hennar fyrir í ferðatösku sem hann steypti svo í svalagólfið við íbúð sína. Maðurinn var ekki búsettur í umræddri íbúð þegar hann var handtekinn en hann flutti úr íbúðinni árið 2016.