Töflurnar eru fjórar talsins og eru úr leir. Þær eru elstu þekktu dæmin um tunglmyrkva fyrirboða að sögn Andrew George, prófessors við University of London, og Junko Taniguchi, sjálfstæðs rannsakanda. Þetta kemur fram í rannsókn þeirra sem var birt nýlega í Journal of Cuneiform Studies.
Þeir sem gerðu töflurnar notuðu næturtíma, hreyfingar skugga og dagsetningar og lengd tunglmyrkva til að spá fyrir um fyrirboða.
Einn fyrirboðinn segir að „ef tunglmyrkvi verður skyndilega hulin miðju sinni og skýr um leið, þá muni konungur deyja og Elam eyðast“. Elam var svæði í Mesópótamíu, þar sem nú er Íran.
Annar fyrirboði segir að ef tunglmyrkvi verður að kvöldi til, sé drepsótt yfirvofandi.
Vísindamennirnir segja að hugsanlega hafi stjörnufræðingarnir, sem skráðu fyrirboðana á töflurnar, notað fyrri reynslu til að ákveða hvaða fyrirboða ákveðnar tegundir tunglmyrkva hefðu.
Live Science hefur eftir George að uppruni sumra fyrirboðanna hafi hugsanlega verið í raunverulegri reynslu þar sem hörmungar hafi fylgt í kjölfar fyrirboða. Líklega hafi þó flestir fyrirboðarnir verið ákveðnir út frá kerfi sem tengdi einkenni tunglmyrkva við hina ýmsu fyrirboða.