Samkvæmt fréttum kínverskra fjölmiðla þá eru Kínverjar nú reiðubúnir til að senda fyrstu 18 gervihnettina á loft og markar það upphafið að samkeppni þeirra við Starlink gervihnetti Elon Musk.
Gervihnöttunum verður skotið á loft frá frá Taiyuan Satellite Launch Center í norðurhluta Shanxi héraðsins að sögn Reuters.
Gervihnettirnir munu veita fólki tækifæri til að tengjast Internetinu eins og nú er hægt með Starlink.
Starlink er með um 6.200 gervihnetti á braut um jörðina svo ljóst er að Kínverjar ætla að gera gott betur en það.