Norska ríkisútvarpið fjallaði um nokkra af þessum kostum.
Flest ungt fólk er í eðlilegri líkamsþyngd, það er að segja BMI stuðull þess er á milli 18,5 og 25. En þegar fólk eldist á það til að bæta svolítið á sig og af þeim sökum eru flestir í yfirþyngd þegar þeir eru komnir svolítið áleiðis á fullorðinsárunum. Talið er að 40% kvenna og 25% karla séu í þyngd sem er skilgreind sem eðlileg miðað við BMI. Það er því ekki eðlilegt lengur að vera í „eðlilegri þyngd“.
Það eru líklega meiri líkur á að fólk í yfirþyngd þurfi á heilbrigðisþjónustu að halda en aðrir en ef það er lagt inn á sjúkrahús eru meiri líkur á að það lifi dvölina af en þeir sem ekki eru í yfirþyngd. Niðurstöður nokkurra rannsókna hafa sýnt þetta. Þetta hefur verið nefnt fituþversögnin og á við um allt frá slysum til veikinda. Í raun er enn verið að ræða hvort þessi þversögn sé í raun og veru til. Eftir því sem BMI er hærra er fólk venjulega með meiri vöðva en þeir geta veitt vernd. Einnig er hugsanlegt að fitan sjálf veiti vernd gegn líkamlegum áverkum og gegn erfiðum læknismeðferðum.
Þeim mun stærri sem þú ert, þeim mun orku þarftu til að hreyfa þig. Þess utan notar þú meiri orku í það eitt að halda líkamanum í gangi. 25 ára, sem liggur í rúminu allan daginn, notar þrjú hundruð hitaeiningum meira á dag ef hann er 25 kílóum of þungur. Fólk í yfirþyngd getur því borðað meira en grannvaxið fólk án þess að bæta á sig.
Ef þú getur stundað líkamsrækt með mikilli ákefð skilar það meiri árangri en hjá grannvöxnu fólki. 95 kílóa manneskja getur farið heim að æfingu lokinni með betri samvisku en 70 kílóa manneskja því sú þyngri fékk meira út úr æfingunni. En það líka bara hægt að stytta æfinguna um korter og æfa í þrjú korter á meðan grannvaxna manneskja þarf að æfa í klukkutíma til að ná sama árangri.
Það getur komið sér vel að vera með fitulag á veturna. Fitan veitir einangrun gegn kulda. Ef fitulagið á líkamanum eykst úr 10% í 20% hefur það í för með sér að fólk getur lifað mörgum klukkustundum lengur ef það til dæmis lendir í sjónum. Að auki geta sumar fitufrumur, kallaðar brún fita, framleitt hita.
Að vera með fitulag utan á sér þýðir að þar er orka sem er hægt að ganga á. Í gegnum þróun tegundarinnar okkar hefur eflaust oft komið sér vel að vera með fitulag þegar harðir vetur eða miklir þurrkar geisuðu.
Rannsóknir benda einnig til að konur í yfirþyngd eignist fleiri börn en grannar konur.
Fita hefur í gegnum söguna verið merki um velmegun og er það enn í sumum samfélögum en víða er feitt fólk litið hornauga í dag. En fita getur haft þau áhrif að fólk virðist yngra en það er. Ástæðan er að fita jafnar út hrukkur og línur í andlitinu og hæfilegt fitulag undir húðinni getur einnig komið í veg fyrir að andlitið sígi með aldrinum en of mikið fitulag undir húðinni getur aukið áhrif þyngdaraflsins á andlitið.
Það liggur eiginlega beinast við að trúa að það lengi ævina að vera í eðlilegri þyngd en rannsóknir hafa bent til að ofþyngd, bæði mikil og lítil, geti lengt lífið en rétt er að hafa í huga að sérfræðingar eru ekki sammála um þetta. Sumar rannsóknir sýna að fólk í góðri yfirþyngd lifi lengst þegar aldurinn færist yfir.
Skýringar á þessu geta verið að reykingafólk verður oft grannt og deyr fyrr en aðrir. Það hefur áhrif á meðalaldurinn. Önnur skýring er að fólk sem er í neðri mörkum eðlilegrar þyngdar er oft meiri sjúklingar en aðrir. Þriðja skýringin er að fólk í yfirþyngd borði einfaldlega nægilega mikið til að innbyrða öll þau næringarefni sem þarf til að tryggja sér langt og gott líf.