Nú er ný kenning komin fram en það voru breskir og ástralskir vísindamenn sem settu hana fram. Kenningin snýst um sex tonna stein, svokallaðan altarisstein, sem er í miðju mannvirkisins. Hann var fluttur þangað frá norðurhluta Skotlands fyrir um 4.600 árum að þeirra sögn. Þetta er 750 km leið. Videnskab skýrir frá þessu.
Vísindamennirnir aldursgreindu steininn og báru saman við aldur annarra steina á Bretlandseyjum. Chris Kirkland, prófessor, sagði á fréttamannafundi að með rúmlega 95% öryggi sé hægt að segja að altarissteinninn tengist ákveðnu svæði í norðausturhluta Skotlands.
Það hlýtur að hafa verið mikið verk að flytja svo þungan stein 750 km leið fyrir um 4.600 árum.