Stöðin er frá því á sjöttu öld fyrir Krist og er sú fyrsta frá þessum tíma sem fundist hefur og ein sú stærsta sem var til í Egyptalandi til forna.
Í umfjöllun space.com um málið kemur fram að stöðin hafi verið notuð til að „rannsaka og skrá niðurstöður stjörnuskoðana“.
Í stöðinni voru ýmsir munir sem geta varpað ljósi á hvernig stjörnufræðingar í Egyptalandi til forna störfuðu. Meðal þessara muna eru sólúr úr steini en það hjálpaði stjörnufræðingunum við að mæla tímann út frá hreyfingum sólarinnar.
Einnig fundust styttur af egypskum guðum, til dæmis bronsstytta af Osiris og af Bes.
Einnig fannst það sem var hugsanlega stjörnuskoðunarturn og skráningar á sólarupprás og sólsetri auk ýmissa tímamælinga.