Hún var sett í tankinn þann 23. september 1977 að eigin ósk en sonur hennar, Robert, er talinn vera frumherji þess að fólk láti frysta sig í von um að geta verið vakið til lífsins síðar.
Dennis Kowalksi, stjórnarformaður CI, sagði í samtali við Metro að það muni ekki valda Rhea vonbrigðum að vakna upp í heimi þar sem margskonar illska þrífst, mikil í samanburði við stríðsárin sem hún lifði.
„Ég held að Rhea myndi verða heilluð og full lotningar yfir hvernig þessi frábæri heimur hefur þróast. Hún myndi horfa á dómsdagsspámenn og neikvætt fólk og segja þeim að hætta þessu væli, því það viti ekki hversu slæmt ástandið var á hennar líftíma,“ sagði hann.
Það var Robert sem kom því til leiðar að móðir hans var fryst og síðan hafa margir fylgt í kjölfarið og látið frysta sig.