Í nýrri könnun kom í ljós að graðasti tími vikunnar er klukkan 22.09 á laugardögum. 43% aðspurðra sögðu að laugardagur sé uppáhaldsdagurinn þeirra þegar kemur að kynlífi.
34%, þeirra sem eru virk á kynlífssviðinu, sögðu að tíminn frá 22 til miðnættis sé sá tími sem þeim finnist munúðarfyllstur.
Af þessum 34% sögðust 80% telja að besti tímapunkturinn sé klukkan 22.09.
Kannski er það tíminn sem þú horfist í augu við einhvern ókunnugan á barnum eða þá að þá ljúki sjónvarpsáhorfi kvöldsins með ástinni þinni og það sé „kominn tími til að gera eitthvað annað“.
Tíminn frá klukkan 20 til 22 er einnig nokkuð vinsæll þegar kemur að kynlífsiðkun og kannski kemur það einhverjum á óvart að 54% kvenna sögðust helst vilja stunda kynlíf snemma að kvöldi.
Könnunin, sem var gerð af nærfataframleiðandanum Pour Moi, leiddi einnig í ljós að flestir stunda kynlíf einu sinni í viku. Það er því kannski ekki úr vegi að hlakka til laugardaga!
Föstudagur er næstvinsælasti dagurinn þegar kemur að kynlífi en 22% sögðust helst vilja stunda kynlíf þá.
10% sögðu sunnudaga besta daginn til kynlífs og 6% sögðust kjósa fimmtudag til slíkrar skemmtunar.
Minnst munúðarfulli tími vikunnar er mánudagur klukkan 13.02, að minnsta kosti ef marka má svör þátttakendanna.
Hvað varðar tíðni kynmaka þá sögðust 48% stunda kynlíf með einhverjum einu sinni í viku. 20% sögðust stunda kynlíf tvisvar í viku og 13% þrisvar. Aðeins 1% sagðist stunda kynlíf daglega.