fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Pressan

„Það voru bara þessi þrjú orð: Shaken baby syndrome. Án þeirra væri hann frjáls maður í dag“

Pressan
Miðvikudaginn 18. september 2024 20:49

Robert og dóttir hans Nikki skömmu áður en hún lést.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margt bendir til þess að Bandaríkjamaðurinn Robert Robertson verði tekinn af lífi þann 24. október næstkomandi fyrir að hafa banað tveggja ára dóttur sinni, Nikki Curtis, árið 2002.

Fjölmargir hafa þó biðlað til yfirvalda um að stöðva yfirvofandi aftöku í ljósi þess að margir telja að Robert, sem er 57 ára, sé saklaus.

Það var þann 31. janúar 2002 að Robert mætti með dóttur sína á sjúkrahús í bænum Palestine í Texas. Stúlkan var meðvitundarlaus, blá og augljóslega í mikilli lífshættu.

Læknar hringdu nær umsvifalaust á lögreglu og sögðust fullvissir um að stúlkan væri með það sem kallast Shaken baby syndrome. Nikki lést á sjúkrahúsinu daginn eftir og töldu læknar fullvíst að hún hefði verið hrist til dauða – og það áður en krufning hafði farið fram.

Ruslvísindi?

Shaken baby syndrome er umdeilt hugtak í læknavísindum og hafa dómstólar, til dæmis í New Jersey í Bandaríkjunum, afskrifað hugtakið sem „ruslvísindi“ í ákveðnum tilfellum. Það kom þó ekki í veg fyrir að Robert var dæmdur til dauða í febrúar 2003.

Robert hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu í málinu og aldrei viðurkennt að hafa beitt dóttur sína ofbeldi. Margir virðast vera sammála honum og í þeim hópi er til dæmis lögfræðingurinn og rithöfundurinn John Grisham. Læknar, lögfræðingar og vísindamenn eru einnig í þessum hópi

Breska blaðið Guardian hefur fjallað töluvert um mál Roberts undanfarin misseri. Í viðtali við blaðið segir Grisham að yfirvöld í Texas séu að fara að taka af lífi saklausan mann.

„Það sem er sérstakt við mál Roberts er það að það var enginn glæpur framinn. Í flestum málum þar sem dauðadómur er kveðinn upp ertu með morðingja og einhver framdi morð, en í tilfelli Roberts var enginn glæpur framinn og samt er verið að fara taka mann af lífi,“ segir Grisham.

Ýmislegt athugavert

Möguleikar Roberts á náðun fara minnkandi með hverjum deginum sem líður og síðustu viku hafnaði dómstóll áfrýjun hans.

Sem fyrr segir telja margir að dauðadómurinn yfir Robert hafi verið byggður á afar veikum grunni. Í fyrsta lagi hafi læknar fullyrt strax að um Shaken baby syndrome væri að ræða áður en rannsókn og krufning fór fram á Nikki.

Í annan stað var litið fram hjá undirliggjandi veikindum hjá stúlkunni en hún hafði verið með yfir 40 stiga rétt áður en faðir hennar fór með hana á sjúkrahús. Læknar litu fram hjá því að hún var með ómeðhöndlaða lungnabólgu og hafði hún fengið uppáskrifað lyf sem geta reynst börnum lífshættuleg, en sú vitneskja var ekki fyrir hendi á þeim tíma.

Loks hefur verið bent á að lögregla hafi ekki tekið tillit til þess að Robert er greindur með einhverfu. Þótti hann koma lögreglumönnum fyrir sjónir sem „kaldrifjaður morðingi“ þar sem hann sýndi ekki miklar tilfinningar í yfirheyrslum hjá lögreglu.

Brian Wharton, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Palestine, fór með rannsókn málsins á sínum tíma. Hann sagði í samtali við Guardian í fyrra að hann teldi að Robert væri saklaus. „Það var enginn glæpavettvangur, engin sönnunargögn. Það voru bara þessi þrjú orð: shaken baby syndrome. Án þeirra væri hann frjáls maður í dag.“

Robert Robertson. Mynd/Innocence Project

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þess vegna eigi fólk að drekka heitt vatn á hverjum morgni

Læknir segir að þess vegna eigi fólk að drekka heitt vatn á hverjum morgni
Pressan
Fyrir 3 dögum

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin

5 leiðir til að minnast ástvina þinna um jólin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Heilinn getur skilið skrifaða setningu á „augabragði“

Heilinn getur skilið skrifaða setningu á „augabragði“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli