Maðurinn, sem er starfsmaður í heimahlynningu, var handtekinn grunaður um tvær nauðganir og eitt alvarlegt kynferðisbrot til viðbótar. Fórnarlömbin eru skjólstæðingar heimahlynningarinnar. Uppsala Nya Tidning skýrir frá þessu.
Fram kemur að talið sé að öll brotin hafi átt sér stað sömu nóttina. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í byrjun ágúst.
Eftir að maðurinn hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald skoðaði lögreglan innihald farsíma hans og tók málið þá nýja stefnu, til hins verra. Innihald símans bendir nefnilega til að hann hafi gerst sekur um að minnsta kosti tvö önnur kynferðisbrot til viðbótar.
Anna Wärwik, saksóknari, sagði í samtali við Uppsala Nya Tidning að henni sé brugðið vegna málsins: „Þetta er auðvitað algjör klikkun. Við erum nú að kortleggja kvöldið og hvernig atburðarásin þróaðist. Rannsóknin hefur dregið upp nokkuð skýra mynda af hverja hann heimsótti og hvað hann gerði þessa nótt.“