fbpx
Þriðjudagur 17.september 2024
Pressan

Ungfrú Sviss kyrkt og sett í blandara

Pressan
Þriðjudaginn 17. september 2024 07:30

Kristina Joksimovic. Mynd:Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um miðjan febrúar fannst Kristina Joksimovic, 38 ára, látin í þvottahúsinu á heimili sínu í Binningen, sem er um 3 km suðvestan við Basel í Sviss. Krufning leiddi í ljós að hún hafði verið kyrkt og síðan hafði lík hennar verið sundurhlutað með sög, hníf og garðklippum í þvottahúsinu. Hún lætur eftir sig tvö börn.

Nokkrir líkamshlutar voru settir í blandara og leystir upp í efnablöndu að sögn bz Basel. Eiginmaður hennar, sem er aðeins nefndur Thomas í svissneskum fjölmiðlum, hefur játað að hafa myrt hana og að hafa sundurhlutað líkið og sett líkamshluta í blandarann. Hann fór fram á það við dómara í Lausanne í síðustu viku að vera látinn laus úr gæsluvarðhaldi og sagðist hafa drepið eiginkonu sína í sjálfsvörn. Dómari hafnaði þeirri beiðni hans.

Hann sagði að Kristina hefði ráðist á hann með hníf en niðurstöður tæknirannsókna á vettvangi ganga gegn þessari fullyrðingu hans.

Fyrir dómi kom einnig fram að Thomas sýni „ákveðin merki andlegra veikinda“ og lýstu lögreglumenn honum sem manni með „sadískar tilhneigingar“.

Saksóknari sagði að hann hefði haldið Kristina upp við vegg og kyrkt hana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Dökkar halastjörnur“ geta verið meiri ógn við jörðina en áður var talið

„Dökkar halastjörnur“ geta verið meiri ógn við jörðina en áður var talið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segist hafa óvart komið af stað sögum um kattaát sem Trump og Vance tóku heilshugar undir

Segist hafa óvart komið af stað sögum um kattaát sem Trump og Vance tóku heilshugar undir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Galnar samsæriskenningar um frammistöðu Kamala Harris í kappræðunum

Galnar samsæriskenningar um frammistöðu Kamala Harris í kappræðunum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þurftu 190 þúsund lítra af vatni til að slökkva í Teslu-flutningabíl

Þurftu 190 þúsund lítra af vatni til að slökkva í Teslu-flutningabíl
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hér kostar 440.000 að pissa í sjóinn

Hér kostar 440.000 að pissa í sjóinn
Pressan
Fyrir 4 dögum

16 ára sænskur piltur var sendur til Kaupmannahafnar til að drepa einhvern

16 ára sænskur piltur var sendur til Kaupmannahafnar til að drepa einhvern