Talið er að nokkur hundruð liðsmenn Hezbollah-samtakanna hafi særst eða látið lífið í dag þegar sprengjum var komið fyrir í símboðum sem liðsmenn nota til að hafa samskipti sín á milli.
Flestir liðsmenn samtakanna voru í Beirút, höfuðborg Líbanons, eða í suðurhluta landsins þegar tækin sprungu samtímis.
Ónafngreindur heimildarmaður innan Hezbollah- segir að um sé að ræða stærsta öryggisbrest í sögu samtakanna.
Það er alls óvíst á þessari stundu hvernig þetta gat átt sér stað og hvaða tækni var notuð, en getgátur eru uppi um að ísraelska leyniþjónustan hafi komið þarna nálægt.
Daily Mail segir frá því að mikil ringulreið hafi komið upp í Beirút eftir sprengingarnar en á samfélagsmiðlum má til dæmis sjá myndir af illa slösuðum liðsmönnum samtakanna. Á einu myndbandi má sjá meintan liðsmann samtakanna með sundurtættar hendur eftir að símtæki hans sprakk.
AFP hefur eftir heimildarmanni innan Hezbollah að það sé engum vafa undirorpið að Mossad, ísraelska leyniþjónustan, hafi komið einhvers konar sprengjum fyrir í tækjunum. Ísraelsher hefur enn sem komið er ekki tjáð sig um málið.
Hassan Nasrallah, núverandi aðalritari Hezbollah, hvatti liðsmenn samtakanna fyrr á þessu ári til að nota frekar símboða en farsíma til að eiga samskipti sín á milli. Taldi hann að auðveldara væri fyrir leyniþjónustur erlendra ríkja, Ísraels sem dæmi, að fylgjast með samskiptum í gegnum farsíma.
Símboðar nutu töluverðra vinsælda hér á árum áður en um er að ræða þráðlaust símtæki sem tekur við símanúmeri þess sem hringir og pípir um leið. Getur notandi símboðans þá hringt í viðkomandi þegar hann hefur aðgang að síma. Voru símboðarnir vinsælir áður en hinir hefðbundnu farsímar náðu almennri útbreiðslu.