fbpx
Miðvikudagur 11.september 2024
Pressan

Sjáðu hvernig Trump brást við spurningum um frammistöðu sína í nótt

Pressan
Miðvikudaginn 11. september 2024 09:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrstu kappræðurnar milli forsetaframbjóðendanna Kamala Harris og Donald Trump fóru fram í nótt og af viðbrögðum netverja má ætla að kjósendur beggja séu nokkuð lukkulegir með frammistöðu síns frambjóðenda. Sérfræðingum þykir þó Harris hafa staðið sig ögn betur en fjölmiðlar á hægri kantinum vilja þó meina að hún hafi fengið ósanngjarnan liðstyrk frá stjórnendum kappræðnanna.

Trump sjálfur virðist ganga sáttur frá borði og telur sig augljósan sigurvegara næturinnar. Hann veitti fjölmiðlum viðtal eftir kappræðurnar þar sem sagði að Harris hafi þegar óskað eftir öðrum kappræðum, og telur Trump það skýrt merki um að hann hafi staðið sig betur. „Hún vill aðrar kappræður því hún tapaði frekar illa í kvöld“

Hann kvartaði eins undan stjórnendum kappræðnanna. Þau hafi verið með Harris í liði. Þetta byggir forsetaframbjóðandinn á því að stjórnendur leiðréttu hann ítrekað eftir að hann fór með rangfærslur. Svo sem þegar Trump hélt því fram að demókratar leyfi þungunarrof eftir að börn eru fædd, að innflytjendur séu að éta heimilisketti nágranna sinna og að ofbeldisfullum glæpum hafi fjölgað í stjórnartíð Joe Biden Bandaríkjaforseta.

Spurningum rigndi yfir Trump sem meðal annars tók fram að hann elska svarta kjósendur „og þeir elska mig líka“ í beinu framhaldi var hann spurður hvort hann óttaðist að missa atkvæði kjósenda frá Haiti eftir ítrekaðar fullyrðingar Trump og varaforsetaefnis hans, JD Vance, um að innflytjendur frá Haiti séu að veiða ketti, gæsir og endur og borða dýrin. Trump sagði að ef svo væri þá yrði það svo, hann væri bara að segja sannleikann. Rétt er að geta þessa að þessar ásakanir gegn innflytjendur frá Haiti hafa hvergi fengist  staðfestar heldur virðast eiga rætur að rekja til facebook-færslu í íbúahóp þar sem gæludýr fannst látið í tré nærri heimili fólks frá Haiti, sú frásögn hefur ekki heldur fengist staðfest.

„Þetta voru mínar bestu kappræður“ sagði Trump og tók fram að Harris hafi staðið sig illa, sérstaklega hvað varðaði utanríkismál og landamæri Bandaríkjanna. „Ég er mjög lukkulegur með kvöldið“

Síðar sagði Trump að hann væri augljós sigurvegari kvöldsins samkvæmt fyrstu könnunum þar sem hann hefði mikla yfirburði. Ekki er ljóst hvaða kannanir hann vísar til en almennt hefur Harris mælst ögn hærri eftir frammistöðu kvöldsins, þó enn sé naumt á munum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Af hverju er botninn á gosdósum ekki flatur?

Af hverju er botninn á gosdósum ekki flatur?
Pressan
Í gær

Myrti fjóra í skólanum sínum – Nú streyma skelfilegar sögur um fjölskylduna fram

Myrti fjóra í skólanum sínum – Nú streyma skelfilegar sögur um fjölskylduna fram
Pressan
Fyrir 2 dögum

Skrímslið í Avignon segir lögreglu hafa rústað lífi sínu – Allir væru hamingjusamari hefði hann áfram fengið að brjóta gegn eiginkonu sinni

Skrímslið í Avignon segir lögreglu hafa rústað lífi sínu – Allir væru hamingjusamari hefði hann áfram fengið að brjóta gegn eiginkonu sinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afinn varpar sprengju: „Hann þarf að fá dauðarefsingu“

Afinn varpar sprengju: „Hann þarf að fá dauðarefsingu“