Meðal þess sem fólk er oft ekki sammála um, er hvernig á að hafa skapahárin. Í Bandaríkjunum starfar snyrtifræðingur að nafni Tamar við að fjarlægja skapahár viðskiptavina sinna og birtir hún oft myndbönd á TikTok þar sem hún segir frá starfi sínu. Daily Star skýrir frá þessu.
Í einu þessara myndbanda segir Tamar að það sé ein ósk viðskiptavina sem hún neiti alltaf að verða við og muni gera.
Þetta er þegar viðskiptavinir hennar biðja hana um að „gera upphafsstafi þeirra í skapahárin“. Þrátt fyrir að hún myndi auðvitað fá greitt fyrir að gera þetta, þá vill hún það alls ekki og segir fólki að finna einhver annan í verkið.
Hún líkir stöðu sinni við aðrar atvinnugreinar og segir meðal annars að hún sé til í að veðja að henni líði stundum eins og húðflúrurum þegar þeir fá undarlegar óskir.