„Sturtan er öruggur staður, þar sem við erum oft ein með hugsanir okkar. Margir nota þessa stund til að fara yfir daginn, syngja eða til að gefa tilfinningunum lausan taum í gegnum tár,“ sagði hún.
Það kom fram í þættinum að rannsóknir hafi sýnt fram á að sturta sé einn vinsælasti staðurinn þegar kemur að því að gráta. Hvað varðar grát kynjanna þá er mikill munur á tíðninni því konur gráta að meðaltali 5,3 sinnum í mánuði en karlar 1,3 sinnum. 74% fólks grætur í sturtu.
Johnston sagði að það sé engin ástæða til að skammast sín fyrir að gráta í sturtu, þvert á móti. Það að gráta í sturtu losi um spennu í líkamanum og huganum og komi líkamanum aftur í afslappað ástand og virki þau efni sem hjálpa til við að bæta skapið. Eftir þetta sé fólk oft miklu afslappaðra og tilbúið til að fara að sofa.
Hún benti einnig á að það að skella sér í örsnögga kalda sturtu eftir að hafa grátið, geti hjálpað til við að vekja líkamann svo fólk sé betur í stakk búið til að takast á við daginn.