En byrjum á að skoða hið trúarlega svar við þessu. Hænur, eins og við þekkjum þær, komu fram á sjónarsviðið fyrir um 10.000 árum. Þýðir það þá að eggið hafi komið fram á sjónarsviðið rétt áður?
Þetta er auðvitað erfið spurning en ef skoðað er hvað kristnir heimspekingar sögðu um þetta fyrr á öldum, þá sögðu bæði Ágústín og St. Thomas Aquinas, sem báðir hugleiddu þessa gátu á sínum tíma, að hænan hafi komið fyrst því guð hafi skapað öll dýrin. Þetta byggðu þeir á texta úr Fyrstu Mósebók.
En hvað segja vísindin? BBC Science Focus segir að rétta svarið sé að eggið hafi komið fyrst og að ástæðan fyrir því sé að egg séu miklu eldri en hænur.
„Risaeðlur verptu eggjum, fyrstu fiskarnir, sem skriðu upp úr sjónum, verptu eggjum sem og fleiri dýr,“ er haft eftir Luis Villazon, dýrafræðingi. Hann benti á að þrátt fyrir að þetta hafi ekki verið hænsnaegg, þá hafi þetta samt sem áður verið egg.
Þetta er góður punktur hjá honum og hefur ekki áhrif á lausn gátunnar því í henni er ekki tekið fram frá hvaða dýri eggið ætti að hafa komið.