Þetta gerðist fyrir 24 árum um borð í flugvél frá Southwest Airlines og hefur málið ekki enn verið leyst að fullu. Metro segir að „flugæði“ hafi runnið á Jonathan og hafi hópur farþega yfirbugað hann og haldið niðri í kjölfar hegðunar hans.
Flugvélin tók á loft frá Las Vegas 11. ágúst 2000 og var förinni heitið til Salt Lake City í Utah. Jonathan ætlaði að heimsækja ættingja sína þar í borg. Hann ætlaði meðal annars að hjálpa frænda sínum að mála hús, fara á vatnsskíði og gönguferð í óbyggðum.
Móðir hans ók honum á flugvöllinn og tók ekki eftir neinu óeðlilegu í fari hans.
En það breyttist á sekúndubroti og enginn veit af hverju. Alríkislögreglan FBI rannsakaði málið og skráði framburð vitna og hlustaði á upptökur úr flugstjórnarklefanum en það varð ekki til þess að leysa málið.
Þegar vélin var komin í flughæð sína og byrjað var að bera fram drykki breyttist svipur Jonathan og varð „brjálæðislegur“ að sögn annars farþega.
Jonathan stóð skyndilega upp og greip drykk af veitingavagninum án þess að segja eitt orð. Hann gramsaði síðan í honum í leit að hnetum en síðan beindi hann athygli sinni að dyrunum að flugstjórnarklefanum og öskraði: „Ég get flogið þessari vél, ég get flogið þessari vél“ og sparkaði hurðinni upp og fór inn í klefann og reyndi að ná taki á flugmönnunum.
Farþegar lýstu því sem svo að algjör ringulreið hefði gripið um sig í vélinni, farþegar hefðu öskrað og börn grátið. Aðrir farþegar gripu til sinna ráða og yfirbuguðu Jonathan og sneru hann niður.
Þegar lögreglan kom inn í vélinni lá Jonathan á grúfu og einn farþegi hið minnsta stóð ofan á hálsi hans.
Jonathan var úrskurðaður látinn við komuna á sjúkrahús. Krufning leiddi í ljós að köfnun var banamein hans. Mikill fjöldi marbletta var á líkama hans.
Talið er að minnsta kosti átta farþegar hafi komið að því að halda honum niðri en enginn var ákærður í málinu því ríkissaksóknarinn í Utah komst að þeirri niðurstöðu að um sjálfsvörn hefði verið að ræða.
Kanadamaðurinn Dean Harvey, sem var farþegi, sagðist að sögn The Guardian hafa séð stóran mann hoppa ítrekað ofan á Jonathan á meðan honum var haldið föstum. Hann sagðist hafa beðið manninn um að hætta þessu og að ekki hafi verið um sjálfsvörn að ræða. Búið hafi verið að yfirbuga Jonathan og það hafi ekki verið nein þörf á að hoppa ítrekað ofan á honum.
En það er hins vegar óleyst ráðgáta hvað varð þessi valdandi að svo mikil reiði greip Jonathan. Leifar af kannabis og kókaíni fundust í blóði hans en FBI telur ekki að efnin hafi valdið æðiskasti hans.