fbpx
Föstudagur 23.ágúst 2024
Pressan

Tveir 11 ára strákar fóru út að leika í góða veðrinu – Skömmu síðar voru þeir dánir

Pressan
Föstudaginn 23. ágúst 2024 04:04

John Greenwood og Gary Miller. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

John Greenwood og Gary Miller voru bara 11 ára strákar sem vildu leika sér saman úti í góða veðrinu. En skömmu eftir að þeir fóru út að leika voru þeir dánir. Höfðu verið myrtir.

Þetta gerðist þann 16. ágúst 1980 í Whiston á Englandi. Maður, sem var að viðra hundinn, sinn fann þá illa á sig komna undir dýnu á víðavangi. Þeim hafði verið misþyrmt hrottalega. Þeir voru fluttir beint á sjúkrahús en ekki tókst að bjarga lífi þeirra.

Drengirnir höfðu verið saman allan daginn og borðuðu kvöldmat saman heima hjá Gary.

Lögreglumenn komu fljótt á vettvang og handtóku fljótlega mann sem þeir töldu hafa ráðist á drengina. Hann var síðar ákærður en var sýknaður af morðákærunni þegar dómstóll í Liverpool tók málið fyrir. Enn þann dag í dag hefur enginn verið sakfelldur fyrir morðin að sögn Metro.

Debbie Turell, systir John, var tveggja ára þegar bróðir hennar var myrtur. Hún hefur barist fyrir því alla tíð að réttlætið nái fram að ganga  í málinu og ræddi við ECHO nú þegar 44 ár eru liðin frá þessum hryllilega verknaði.

„Ég man ekki eftir John, svo minningar mínar um hann byggjast á því sem fólk hefur sagt mér. Hann var vanur að syngja fyrir mig fylgja mér eftir til að tryggja að ég meiddi mig ekki. Hann vakti yfir mér þegar við fórum á ströndina eða eitthvað annað. Mamma dó 2021 og það var sárt. Það var enn sárara að hún lifði ekki til að sjá réttlætið ná fram að ganga. Mamma Gary er á níræðisaldri, pabbi er á áttræðisaldri og það er skelfilegt að hugsa til þess að þau ná kannski ekki að sjá réttlætið ná fram að ganga,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Handklæðamafían setti nýtt met – „Fáviti“

Handklæðamafían setti nýtt met – „Fáviti“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Týnd skæri komu af stað allsherjar uppnámi

Týnd skæri komu af stað allsherjar uppnámi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dómara vikið frá störfum – Lét handjárna ungling sem svaf í dómsalnum

Dómara vikið frá störfum – Lét handjárna ungling sem svaf í dómsalnum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hugsanlega sleppur Los Angeles við verstu áhrif stóra skjálftans

Hugsanlega sleppur Los Angeles við verstu áhrif stóra skjálftans