Sky New skýrir frá þessu og segir að til standi að opna landamærin síðar á árinu eftir því sem talsmenn ferðaþjónustufyrirtækja segi.
Frá því að landinu var lokað fyrir ferðamönnum 2020 þá hafa aðeins fámennir hópar rússneskra ferðamanna fengið að heimsækja landið en það gerðist í júní þegar Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, var þar í opinberri heimsókn.
Koryo Tours, sem er ferðaþjónustufyrirtæki með höfuðstöðvar í Peking, sagði að þar á bæ hlakki starfsfólkinu til enduropnunar landamæranna. Að sögn fyrirtækisins verður þetta staðfest endanlega á næstu vikum og að fyrstu ferðamennirnir geti heimsótt Samjiyon í desember.
Norður-Kórea hefur verið að byggja „sósíallístíska útópíu“ í Samjiyon sem er við kínversku landamærin. Þar hafa nýjar íbúðir, skíðasvæði, verslanir, menningarstofnanir og heilbrigðisstofnanir verið reistar.
Rússnesku ferðamennirnir sem fengu að fara þangað fyrr á árinu í fjögurra daga ferð voru ekki yfir sig hrifnir af áfangastaðnum og því að „leiðsögumaður“ fylgdi þeim við hvert fótmál.