Flestir hafa eflaust prufað að vera með yfirmann sem er harður í horn að taka og strangur en miðað við lýsingarnar í nýju bókinni þá virðist Gates vera grjótharður yfirmaður sem hlífir engum.
Bókin er skrifuð af Anupreeta Das, blaðamanni hjá New York Times, en í henni er fjallað um eitt og annað tengt auðjöfrinum.
„Hann er erfiðasti maður í heimi þegar kemur að því að afhenda honum eitthvað skriflegt. Hann getur rennt yfir það á leifturhraða og bent á að það sem maður skrifaði í neðanmálsgrein á síðu níu passi ekki við það sem stendur í neðanmálsgreininni á síðu 28,“ segir fyrrum starfsmaður hjá Bill og Melinda Gates Foundation í bókinni. New York Post skýrir frá þessu.
Bill and Melinda Gates Foundation heitir nú Gates Foundation en nafninu var breytt í kjölfar skilnaðar hjónanna í kjölfar orðróma um framhjáhald Bill og að hann hefði verið viðriðinn mál barnaníðingsins Jeffrey Epstein.
Í bókinni er haft eftir fyrrum starfsmönnum Gates að það hafi virst henta honum vel að vera einráður stjórnandi og sumir líkja honum við Lúðvík fjórtánda, Frakkakonung. „Fundir með honum, voru svolítið eins og þetta væri konungur með hirð, þar sem Gates var Lúðvík fjórtándi og starfsfólkið hirðin sem hneigði sig fyrir honum í Versölum í von um að hljóta viðurkenningu hans,“ segir í bókinni.