fbpx
Fimmtudagur 22.ágúst 2024
Pressan

Móðirin dæmd í lífstíðarfangelsi eftir ólýsanlegan harmleik

Pressan
Fimmtudaginn 22. ágúst 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mariann Belair, 24 ára móðir í Kansas í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í ævilangt fangelsi eftir skelfilegan harmleik á heimili fjölskyldunnar laugardaginn 14. október síðastliðinn.

Tveggja ára sonur hennar náði þá í hlaðna skammbyssu sem var á sófa í stofunni og skaut fjögurra ára gamla systur sína til bana. Móðirin var fundin sek um morð af fyrstu gráðu og var talin bera alla ábyrgð á því hvernig fór. Mun hún ekki geta sótt um reynslulausn fyrr en eftir 25 ár.

Mariann bar vitni fyrir dómi þar sem hún lýsti því að hún hafi fjarlægt skammbyssuna úr skúffu á heimilinu þar sem hún geymdi meðal annars bleyjur. Sagðist hún hafa verið á leið út með börnin og viljað tryggja að hún gleymdi engu. Fjögurra ára dóttir hennar hafi „truflað“ hana með því að biðja hana um að taka mynd af sér og þá hafi drengurinn teygt sig í byssuna og skot hlaupið úr henni.

Saksóknarar bentu á það fyrir dómi að hlaðin byssan hafi verið á sófanum í að minnsta kosti 12 mínútur áður en drengurinn, sem var að verða þriggja ára, teygði sig í hana. Móðirin hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi að skilja hlaðna byssuna eftir á glámbekk.

Í frétt AP kemur fram að Mariann hafi kvartað undan lögmanni sínum á meðan málið var fyrir dómi. Hvatti hann hana til að hafna samkomulagi sem henni bauðst um að játa sök í málinu gegn því að fá 10 ára fangelsisdóm. Mariann er komin með nýjan lögmann og hefur hann farið fram á að ný réttarhöld fari fram í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum starfsmaður furðar sig á því hvað varð til þess að snekkjan sökk – Þetta er fólkið sem er saknað

Fyrrum starfsmaður furðar sig á því hvað varð til þess að snekkjan sökk – Þetta er fólkið sem er saknað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er

Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bjóða SpaceX 843 milljónir dollara fyrir að eyðileggja Alþjóðlegu geimstöðina

Bjóða SpaceX 843 milljónir dollara fyrir að eyðileggja Alþjóðlegu geimstöðina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stakk unnustann til bana – Það sem hún gerði síðan skelfdi alla

Stakk unnustann til bana – Það sem hún gerði síðan skelfdi alla
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni