fbpx
Fimmtudagur 22.ágúst 2024
Pressan

TikTok-áhorf dró dilk á eftir sér – Dæmdur í 22 ára fangelsi

Pressan
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 12:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flutningabílstjóri í Arizona hefur verið dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir að verða valdur að dauða fimm einstaklinga í hörmulegu umferðarslysi skammt frá borginni Chandler.

Slysið varð þann 12. janúar 2023 þegar bílstjórinn, Danny Glen Tiner, ók flutningabifreið sinni eftir I-10 hraðbrautinni. Hann áttaði sig ekki á því fyrr en of seint að umferð á veginum var stopp og varð það til þess að hann ók á nokkrar kyrrstæðar bifreiðar á mikilli ferð. Mikið eldhaf blossaði upp eftir slysið.

Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að Danny hafði verið í símanum fyrir slysið, nánar tiltekið á TikTok, þar sem hann horfði á alls fjögur myndbönd nokkrum sekúndum áður en slysið varð. Fékk hann alls 22,5 ára fangelsi, eða 4,5 ár fyrir hvern sem lést í slysinu.

Fjórir af þeim sem létust voru starfsmenn AAA Landscaping og voru þeir á leið til vinnu á Ford F-250 bifreið eins þeirra þegar Danny ók á þá. Sá fimmti sem lést hét Ryan Gooding en hann ætlaði að ganga í hjónaband um mitt síðasta ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum starfsmaður furðar sig á því hvað varð til þess að snekkjan sökk – Þetta er fólkið sem er saknað

Fyrrum starfsmaður furðar sig á því hvað varð til þess að snekkjan sökk – Þetta er fólkið sem er saknað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er

Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bjóða SpaceX 843 milljónir dollara fyrir að eyðileggja Alþjóðlegu geimstöðina

Bjóða SpaceX 843 milljónir dollara fyrir að eyðileggja Alþjóðlegu geimstöðina
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stakk unnustann til bana – Það sem hún gerði síðan skelfdi alla

Stakk unnustann til bana – Það sem hún gerði síðan skelfdi alla
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni