Þann 9. ágúst opnaði fangavörðurinn umslag sem virtist vera frá lögmannsstofu. Örfáum mínútum síðar byrjaði hann að kvarta undan vanlíðan og óskaði hann eftir heilbrigðisaðstoð. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést tveimur klukkustundum síðar.
Við rannsókn málsins kom í ljós að bréfsefnið hafði verið húðað með fentanýli og öðrum hættulegum fíkniefnum. Umslagið var stílað á Jamar Jones og hefur hann verið ákærður ásamt tveimur öðrum sem grunaðir eru um að hafa ætlað að senda bréfið til hans.
Fentanýl er gríðarlega sterkt verkjalyf sem sagt er vera hundrað sinnum sterkara en morfín. Efnið í mjög litlu magni getur dregið fólk til dauða á nokkrum mínútum.