Sky News segir King hafi hótað Goodman að henni yrði stungið í ungmennafangaklefa vegna þess að hún sofnaði í dómsalnum.
Sjónvarpsstöðin WXYZ-TV segir að á upptöku af atburðinum sjáist að þegar King tók eftir því að Goodman svaf í dómsalnum hafi hann sagt: „Ef þú sofnar aftur í dómsalnum mínum, þá mun ég láta stinga þér í fangaklefa, skilurðu það?“
Hann lét síðan færa Goodman í fangaföt og handjárn og hótaði að hún myndi þurfa að dvelja í ungmennafangelsi um hríð. Síðan sleppti hann henni.
William McConico, yfirdómari dómstólsins, sagði í kjölfarið að King hefði verið vikið frá störfum og myndi gangast undir „nauðsynlega þjálfun til takast á við undirliggjandi vandamál sem hefðu valdið þessari hegðun“.