fbpx
Mánudagur 19.ágúst 2024
Pressan

Stríðsherrann Kadyrov lukkulegur með Musk og býður honum í heimsókn -„Þeir kalla trukkinn ekki skepnu að ástæðulausu“

Pressan
Mánudaginn 19. ágúst 2024 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stríðsherrann Ramzan Kadyrov, leiðtogi Téténíu, hefur boðið auðkýfingnum Elon Musk í heimsókn til Rússlands. Þetta gerði Kadyrov eftir að hann var myndaður við að keyra Cybertrukk frá fyrirtæki Musk, Teslu, en Kadyrov hafði bætt vélbyssu við trukkinn.

Kadyrov sagði cybertrukkinn óumdeilanlega bestu bifreið í heimi. „Ég kolféll fyrir honum,“ sagði stríðsherrann á Telegram. Hann lofaði því að gefa rússneska hernum bílinn svo hægt væri að nota hann í innrásinni í Úkraínu. „Þeir kalla trukkinn ekki skepnu að ástæðulausu. Ég er viss um að þessi skepna mun koma sér vel fyrir strákana okkar“

Kadyrov segir að Musk hafi sent sér bifreiðina, en sú fullyrðing hefur ekki fengist staðfest, hvorki hjá Teslu né Musk. Hún hefur þó að sama bragði ekki verið hrakin. Kadyrov sagðist vona að Musk kæmi í heimsókn til Téténíu og líklega muni rússneska utanríkisráðuneytið ekki hindra auðkýfinginn í þeirra ferð. Kadyrov bætti við í skilaboðum sínum til Musk: „Og að sjálfsögðu erum við að bíða eftir nýjum þróunarverkefnum sem geta hjálpað okkur að ljúka þessum sérstöku hernaðaraðgerðum okkar í Úkraínu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Telja að Neanderdalsmenn hafi í raun ekki dáið út

Telja að Neanderdalsmenn hafi í raun ekki dáið út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afhjúpar leyndarmálið um hvernig „evrópska erfðamengið“ varð til

Afhjúpar leyndarmálið um hvernig „evrópska erfðamengið“ varð til
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur

Lést eftir að hafa óvart hellt þvottaefni út á morgunkornið í stað mjólkur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fokvondur frúnni og hótaði að keyra með börnin fram af kletti – „Ég fer til helvítis til að bíða eftir þér“

Fokvondur frúnni og hótaði að keyra með börnin fram af kletti – „Ég fer til helvítis til að bíða eftir þér“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Coca-Cola með nýtt og ótrúlegt bragð – Oreo-Cola

Coca-Cola með nýtt og ótrúlegt bragð – Oreo-Cola
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óvænt aukaverkun af notkun Wegovy og Ozempic – Aukin kynhvöt

Óvænt aukaverkun af notkun Wegovy og Ozempic – Aukin kynhvöt