Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er

Breski milljarðamæringurinn Mike Lynch er í hópi þeirra sex sem enn er saknað eftir að snekkja sökk í óveðri við strendur Sikileyjar á Ítalíu í nótt. Alls voru 22 í snekkjunni þegar henni hvolfdi, flestir þeirra breskir ríkisborgarar. Snekkjan sem um ræðir, Bayesian, er metin á um tvo milljarða króna og kostar vikuleiga á henni tæpar 30 milljónir króna. … Halda áfram að lesa: Milljarðamæringur í hópi þeirra sem saknað er