Live Science skýrir frá þessu og segir að með aðstoð James Webb geimsjónaukans hafi vísindamenn fundið þessa fjarlægu plánetu fyrir nokkrum árum. Hún líkist „auga“ því þar er haf, sem líkist augasteini“ sem er umlukið ís. Plánetan gæti því verið góður kandídat þegar kemur að því að finna fjarplánetur þar sem líf getur þrifist.
Plánetan fannst 2017. Í upphafi var talið að hún væri einhverskonar „míní-Neptúnus“ og að þar væri blanda af vatni, metani og ammoníaki.
Nýjasta rannsóknin á plánetunni, sem verður birt í vísindaritinu The Astrophysical Journal Letters, bendir til að meiri ís sé á plánetunni og að þar sé meiri væta en talið var. Þetta þýðir að þar gæti líf þrifist.
Charles Cadieux, aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir að LHS 1140 b sé hugsanlega besti kandídatinn þegar kemur að því að staðfesta að fljótandi vatn sé á plánetu utan sólkerfisins okkar. Hann segir að ef það gerist, þá verði það risastórt skref í leitinni að lífvænlegum fjarplánetum.
Þvermál plánetunnar er um 1,73 sinnum þvermál jarðarinnar og massi hennar er 5,6 sinnum massi jarðarinnar. Hún er á læstri braut um stjörnuna sína sem þýðir að hún snýst á sama hraða og stjarnan og er í 4.000 km fjarlægð frá henni. Þar sem braut hennar er svona nálægt stjörnunni þá er eitt ár aðeins 25 dagar.