Metro hefur þetta eftir móður hennar. Fram kemur að Hannah hafi fengið sér sopa af drykknum þegar hún var komin í biðstofu tannlæknis þar sem hún átti tíma. Þá uppgötvaði hún að kúamjólk var í drykknum.
Móðir hennar hafði sagt þeim sem afgreiddi þær að Hannah væri með mjólkuróþol að sögn lögmannsstofunnar Leigh Day sem fer með málið fyrir hönd móður hennar.
Fjölskyldan fór strax með Hannah í apótek og fékk EpiPen sem var sprautað í Hannah en það var um seinan. Hannah lést skömmu síðar af völdum ofnæmisviðbragða.
Þetta gerðist í febrúar á síðasta ári en málið er nú til meðferðar hjá dánardómsstjóra í Lundúnum.