BBC segir að mikill fjöldi hafi tekið þátt í mótmælunum og hafi meðal annars haldið á spjöldum sem á stóð: „Við viljum ekki gefa Serbíu“ og „Rio Tinto, hunskist frá Serbíu“.
Í júlí var aftur hafist handa við námuvinnslu í námu í Jadar í austurhluta landsins en námunni var lokað 2022. Það er liþíum sem er sóst eftir í námunni en mótmælendur óttast að námuvinnslan muni hafa alvarlega umhverfisáhrif.
NPR segir að serbneska ríkisstjórnin standi fast á því að náman sé mikilvæg út frá efnahagslegu sjónarhorni.
Jótlandspósturinn hefur eftir Brian Vad Mathiesen, prófessor í orkuskipulagningu við Álaborgarháskóla, að námuvinnslan geti haft afgerandi þýðingu fyrir evrópsk öryggismál.
Liþíumið í Jadar uppgötvaðist 2004 en þetta er einn stærsti liþíumforðinn í Evrópu.
Í upphafi fékk ástralska námufélagið Rio Tinto heimild til að vinna liþíumið úr jörðu en leyfið var afturkallað 2022 í kjölfar mikilla mótmæla umhverfisverndarsinna í Serbíu að sögn BBC.
En eins og áður sagði, þá var námuvinnsla sett í gang á nýjan leik í júlí í kjölfar dómsniðurstöðu um að ákvörðunin um að afturkalla leyfið til Rio Tinto sé ekki „í takt við stjórnarskrána og lög“. The Guardian skýrir frá þessu.
En ákvörðuninni hefur verið illa tekið í Serbíu því margir óttast að námuvinnslan geti orðið til þess að vatnsból mengist og að lýðheilsu verði ógnað.
Liþíum er mjög mikilvægt efni en það er aðallega notað í rafhlöður rafbíla og þörfin fyrir efnið fer bara vaxandi. Reiknað er með að þörfin fjórfaldist þar til í byrjun næsta áratugar en þá gæti farið að draga úr henni.