fbpx
Þriðjudagur 06.ágúst 2024
Pressan

Leigubílstjóri vildi fá konur til að gefa getnaðarlimnum einkunn

Pressan
Þriðjudaginn 6. ágúst 2024 04:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðfaranótt 13. janúar á þessu ári bað fertugur leigubílstjóri tvær konur um að gefa getnaðarlim hans einkunn. Með þessu vildi hann fá viðurkenningu á að limur hans stæðist væntingar.

Þetta sagði maðurinn fyrir dómi á mánudaginn en mál hans er nú til meðferðar hjá undirrétti í Kaupmannahöfn. Maðurinn er ákærður fyrir nauðgun og blygðunarsemisbrot gagnvart þremur konum. Hann neitar sök.

Ekstra Bladet segir að maðurinn hafi heyrt framburð tveggja kvenna fyrir rétti á mánudaginn og einnig hafi upptaka úr leigubíl hans verið sýnd.

Hann er ákærður fyrir að hafa brotið gegn blygðunarsemi konu, sem var farþegi í leigubíl hans, með því að hafa ítrekað kysst hana á munninn, sleikt fingur hennar og reynt að káfa á kynfærum hennar. Einnig reyndi hann að fá hana til að strjúka klof sitt og um að horfa á liminn, snerta hann og gefa honum einkunn.

Á einni upptökunni sjást tvær konur setjast inn í leigubílinn. Önnur þeirra heilsaði bílstjóranum með því að segja „hæ sæti“. Hann spilaði tónlist hátt og hún dansaði við hana. Á leiðinni blés bílstjórinn sígarettureyk í munn hennar og þau skiptust á einhverskonar kossi.

Bílstjórinn sagðist hafa talið að þetta væri gagnkvæmt en konan sagði fyrir rétti að hún hefði ekki viljað kyssa hann og að hún hafi ítrekað þurft að fjarlægja hönd hans af læri sínu og koma í veg fyrir að hann setti hönd hennar á liminn.

Þegar á áfangastað var komið og konan var að greiða fyrir ferðina, bað leigubílstjórinn hana um að skoða lim sinn og leggja mat á stærðina. Hann reyndi einnig að fá hana til að snerta hann svo hún gæti séð hann í reisn.

Þegar saksóknari spurði hann af hverju hann hefði gert þetta svaraði maðurinn: „Ég reyni að fá staðfestingu frá öðrum konum um nokkur atriði. Konan mín hefur alltaf sagt að ég sé með lítið typpi þegar við rífumst. Ég vildi fá staðfest hjá öðrum að svo sé ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Hvað er hættulegasta efni heims?

Hvað er hættulegasta efni heims?
Pressan
Í gær

Missti starfið eftir rifrildi um Meghan

Missti starfið eftir rifrildi um Meghan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ofurbaktería, sem verður 300.000 að bana árlega, þróaðist hratt frá ósköp venjulegri bakteríu

Ofurbaktería, sem verður 300.000 að bana árlega, þróaðist hratt frá ósköp venjulegri bakteríu
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Þetta er það sem veldur mígreni“ – Fundu „týndan hlekk“

„Þetta er það sem veldur mígreni“ – Fundu „týndan hlekk“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fundu 65 cm langan ál og sítrónu í endaþarmi manns – Þurfti að gangast undir lífsbjargandi aðgerð

Fundu 65 cm langan ál og sítrónu í endaþarmi manns – Þurfti að gangast undir lífsbjargandi aðgerð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Taldi sig hafa fundið höfuðlaust lík á ströndinni – Sannleikurinn var eiginlega enn furðulegri

Taldi sig hafa fundið höfuðlaust lík á ströndinni – Sannleikurinn var eiginlega enn furðulegri