fbpx
Þriðjudagur 28.janúar 2025
Pressan

11 barna faðir lést í hörmulegu slysi – Síðasta sms unnustunnar

Pressan
Sunnudaginn 4. ágúst 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 31 árs gamli Hayden Selby var hvers manns hugljúfi að sögn unnustu hans, Katie Powell. Fjölskyldan var að undirbúa flutning til Illawarra í Ástralíu þegar Selby lést í hörmulegu slysi. 

Föstudaginn 19. júlí síðastliðinn um kl. 16.10 rakst bíll á mótorhjól hans á M1 hraðbrautinni nálægt New Mount Pleasant Road suður af Sydney. Selby var að leiðbeina vinkonu þeirra, Kirsten Anthony, að nýju heimili þeirra þegar slysið varð. Keyrði hún á eftir Selby, á Toyota-jeppa og dró kassakerru fyrir aftan, þegar keyrði á mótorhjól hans. Hefur hún verið ákærð fyrir manndráp af gáleysi.

„Hayden var að hjálpa vini sínum að flytja á föstudaginn og ég sendi honum sms þar sem stóð: „Ég elska þig, keyrðu varlega og passið hvort annað,“ sagði Powell  við 7News. 

Segist hún hafa farið að hafa áhyggjur þegar nokkrar klukkustundir voru liðnar og hún fékk ekkert svar frá Selby. Um klukkan 18 fékk hún símtal frá einum af vinum hans sem greindi henni frá andláti hans.

„Tíminn síðan þá hefur þetta bara verið ein stór þoka. Ég fer með börnin mín í skólann á hverjum degi og eftir það veit ég ekki hvað ég á af mér að gera.“ 

Samanlagt átti parið 11 börn og tvö barnabörn, yngsta barnið þeirra er átta mánaða gamalt.

Powell lýsir unnusta sínum sem óeigingjörnum „verndara“ og „mjúkum risa“ sem hafi alltaf hjálpað fjölskyldu og vinum í neyð.  „Hann var svo mikill bangsi, ljúfur risi og verndari. Hann var sá sem vinir hans gátu reitt sig á fyrir hvað sem er. Það var ekkert sem hann myndi ekki gera fyrir vini og fjölskyldu,“ sagði Powell. 

Powell stofnaði söfnun á GoFundMe til að safna fyrir jarðarför Selby. Rannsókn á slysinu er enn í gangi.

„Þessi fallegi maður var alltaf fyrstur til að bjóða fram aðstoð þegar einhver þurfti hjálp og hann lagði sig allan fram við að gefa börnunum og mér það sem við þurftum og náðum að búa til saman.

Ég bara veit ekki hvernig ég á að halda áfram. Ég er nýorðin einstæð móðir með 11 börn og tvö barnabörn. Maðurinn sem hugsaði vel um alla mikilvægu hlutina í lífi okkar er farinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nokkur merki um að einhverjum líki ekki við þig

Nokkur merki um að einhverjum líki ekki við þig
Pressan
Í gær

Hér er besti matur í heimi

Hér er besti matur í heimi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný tafla með mangóbragði vekur vonir fyrir 1,5 milljarð manna

Ný tafla með mangóbragði vekur vonir fyrir 1,5 milljarð manna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna er svefn svo mikilvægur þegar kemur að ævilengd

Þess vegna er svefn svo mikilvægur þegar kemur að ævilengd
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hryllilegar heimilisaðstæður enduðu með fjölskylduharmleik – „Tilhugsunin um að þeir hafi grátið og öskrað mun ásækja mig að eilífu“

Hryllilegar heimilisaðstæður enduðu með fjölskylduharmleik – „Tilhugsunin um að þeir hafi grátið og öskrað mun ásækja mig að eilífu“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjórinn bannar íbúunum að vera veikir – „Forðist íþróttir, ferðalög og slys heima“

Bæjarstjórinn bannar íbúunum að vera veikir – „Forðist íþróttir, ferðalög og slys heima“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi mynd varð stórtækum fíkniefnasmyglurum að falli

Þessi mynd varð stórtækum fíkniefnasmyglurum að falli
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skyndilega farin að fylgja Trump á miðlum Meta og geta ekki hætt því – „Þetta er bara fasísk áróðursmaskína á fullri ferð“

Skyndilega farin að fylgja Trump á miðlum Meta og geta ekki hætt því – „Þetta er bara fasísk áróðursmaskína á fullri ferð“