Hin 16 ára gamla Mia Campos yfirgaf heimili sitt í Loganville í Georgíu að kvöldi sunnudagsins 14. júlí, með „óþekktum aðila,“ sagði lögreglan í Gwinnett-sýslu í yfirlýsingu. Nokkrum klukkustundum síðar, snemma morguns 15. júlí, brást lögreglan við tilkynningu um að lík hennar hefði fundist í skóglendi rétt við akbraut nálægt heimili hennar.
Fjölskylda hennar sagði yfirvöldum að þegar þau fundu hana ekki eftir að hún fór að heiman notuðu þau farsímaforrit til leita að henni og fundu þannig lík hennar. Læknir komst að þeirri niðurstöðu að dauðsfall hennar væri manndráp.
Fyrrverandi kærasti hennar Jesus Monroy, var handtekinn tveimur dögum síðar eftir að hafa gefið lögreglunni falska yfirlýsingu. Hann var í fyrstu ekki ákærður vegna málsins, en nú í vikunni var hann ákærður í fjórum ákæruliðum fyrir morð, fósturvíg og grófa líkamsárás.
Campos var ófrísk og segir fjölskylda hennar að Monroy hafi verið faðir barnsins. Von var á dreng í september og hafði Campos þegar nefnt ófætt barn sitt Sebastian.
Móðir Campos, Miriam Zarate, segir að hún hafi fundið dóttur sína í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá heimili þeirra. Þegar Campos fannst var líkami hennar bólginn, kaldur og fjólublár og hönd hennar var á kviðnum. „Ég fann dóttur mína liggjandi á grúfu,“ sagði Edward Campos, faðir fórnarlambsins, við Atlanta News First. „Þetta var erfitt. Ég vissi að þetta var eitthvað að – varir hennar, blæðandi nefið,“ sagði hann.
Campos fjölskyldan hefur stofnað söfnun á GoFundMe til að standa straum af útfararkostnaðinum.