Miklir þurrkar ógna allri Suður-Evrópu og á Sikiley er ógnin eiginlega orðin að raunveruleika. Þar geisa nú verstu þurrkar sem herjað hafa á eyjuna áratugum saman. Hitinn er þrúgandi og rúmlega ein milljón eyjaskeggja býr við vatnsskömmtun að sögn CNN. Sumir fá að sögn aðeins vatn þriðja hvern dag.
Appelsínuræktendur horfa upp á appelsínurnar þorna og skreppa saman og líkjast þær að sögn einna helst rúsínum. Eina náttúrulega stöðuvatn eyjunnar er svo gott sem gufað upp og gróðureldar eru nánast orðnir daglegt brauð.
Þurrkar eyðileggja uppskeru bænda og gera drykkjarból húsdýra að leðjupollum.
En það sem er kannski stærsta ógnin við eyjaskeggja er að vatnsskorturinn hefur mikil áhrif á ferðamannaiðnaðinn. Í bænum Agrigento verða lítil hótel nú að vísa ferðamönnum frá því það er ekki hægt að ábyrgjast að það sé nóg vatn til að þeir geti farið í bað eða sturtað niður úr klósettinu.
„Vatn er gull í Agrigento,“ sagði einn heimamaður í samtali við Reuters og New York Times segir að mun færri hafi pantað gistingu á hótelum bæjarins nú en reiknað var með.
Eigandi gistihúss eins sagði í samtali við CNN að þetta geti haft miklar efnahagslegar afleiðingar.
„Ef ferðamannaiðnaðurinn hrynur, þá deyjum við,“ sagði Cinzia Zerbini, talskona ítölsku bændasamtakanna í samtali við New York Times.