Daily Star skýrir frá þessu og segir að maðurinn hafi verið lagður inn á sjúkrahús í Hanoi í Víetnam vegna mikilla kviðverkja.
Röntgenmyndir voru teknar af honum og sáu læknar þá 65 cm langan ál sem maðurinn hafði troðið upp í endaþarminn fyrr um daginn.
Állinn lá þvert yfir kviðinn og það sem olli mestu verkjunum að mati lækna var að hann var að reyna að éta sig út úr kviðnum og hafði bitið í líffæri.
Þegar læknar hófust handa við að reyna að ná álnum út með því að draga hann út um endaþarminn, gerðu þeir aðra undarlega uppgötvun. Þar fundu þeir sítrónu sem maðurinn hafði troðið upp í endaþarminn.
Það var því ekki annað til ráða en að skera manninn upp til að fjarlægja álinn. Sítrónan skilaði sér síðan út um endaþarminn þegar læknar ýttu á hana ofan frá. Einnig þurfti að sauma saman göt á innyflum mannsins.
Maðurinn þarf nú að nota ristilpoka og segja læknar hann heppinn að vera á lífi.